07.04.1930
Efri deild: 71. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)
19. mál, fræðslumálastjórn
Jón Jónsson:
Hv. 3. landsk. var að segja, að hann kynni illa við að vitna í landssímastjóra ásamt hinum embættismönnunum. Það er satt að vísu, að hann er ekki falinn með hinum öðrum stjórunum í 17. gr. launalaganna, en hann hefir þó sömu byrjunarlaun og þeir; en í brtt. er gengið út frá hækkun á sama grundvelli og í 17. gr. En það er augljóst, að landssímastjóri hefir fengið uppbót, og það held ég hv. 3. landsk. viðurkenni. Nú er gert ráð fyrir 2 þús. kr. persónuviðbót, og þó er hann nýr í embætti. Ég hygg óhætt að fullyrða, að vitam.stj. fái uppbót eftir fjárlögum. Líklega ekki vegamálastjóri, sem mun vera með hliðsjón af því, að hann hefir auk embættisins ýms störf fyrir ríkið, sem hann fær allmikið fyrir og eru fastur förunautur hans embættis.
En þeir, sem ég vildi aðallega taka til samanburðar, eru skólastjórarnir, sem ég nefndi. Mér þykir ótilhlýðilegt að sá, sem settur er yfir þá til eftirlits, hafi lægri laun en þeir, en laun yfirmannsins eru sjáanlega miklu lægri eins og er, og jafnvel þótt mín brtt. verði samþ. Og hv. 3. landsk. viðurkenndi, að þau væru sízt of há. En um laun annara embættismanna komum við til með að tala síðar, og finnst mér það ekki nauðsynlegt í sambandi við þessa brtt. Því að laun þessa starfsmanns ríkisins verða ekki hærri en hliðstæðra starfsmanna, þrátt fyrir mína brtt.