25.02.1930
Neðri deild: 36. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í C-deild Alþingistíðinda. (1358)

136. mál, jarðræktarlög

Pétur Ottesen:

Ég sakna þess, að sjá ekki hæstv. atvmrh. viðstaddan umr. um þetta mál. Mér hefði fundizt vel við eiga, að hann léti hér álit sitt í ljós. Hann hefir yfirstjórn þessara mála, og auk þess kosinn af Alþingi í stj. Búnaðarfélags Íslands.