05.03.1930
Neðri deild: 44. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í C-deild Alþingistíðinda. (1383)

136. mál, jarðræktarlög

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Hér er enn um sama misskilninginn að ræða hjá hv. 1. þm. Skagf. Trúnaðarmenn Búnaðarfél. áttu aðeins að meta, hvað miklu væri hægt að afkasta á dag og ákveða dagsverkið eftir því. Og eftir till. trúnaðarmannanna fer svo stj. Búnaðarfélagsins.