07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í C-deild Alþingistíðinda. (1447)

172. mál, einkasala á tóbaki

Jón Auðunn Jónsson:

Ég vil minna á það, að hæstv. 1. forseti þessarar deildar (BSv) sagði það nú í kvöld, að hér yrði enginn næturfundur, og munu sumir þm. þess vegna hafa gengið af fundi þegar 10 mín. fundarhléið var. Mér finnst það því hart, ef orð hans eiga ekki að standa. Auk þess tefur þessi atkvgr. þingið örlítið á morgun og hefir engin áhrif á, hvort þingið stendur lengur eða skemur. Það stóð líka eins á í hv. Ed. í kvöld. Þar var líka 2. umr.