16.04.1930
Efri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í C-deild Alþingistíðinda. (1460)

172. mál, einkasala á tóbaki

Forseti (GÓ):

Mér var kunnugt um þessa deilu, og tel ég miður, að hún skyldi koma upp hér í hv. deild, þar sem annars er svo gott samkomulag. Vil ég nú spyrja, hvort 2. umr. geti ekki farið fram um málið nú og 3. umr. eftir nokkurn tíma.