01.03.1930
Neðri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í C-deild Alþingistíðinda. (1500)

200. mál, Verslunar- og útvegsbanki Íslands

Ásgeir Ásgeirsson:

Það er að vísu rétt, að frv. okkar er síðar fram komið en frv. hv. 2. þm. Reykv. En það sannar þó ekki, að okkar frv. sé í raun og veru yngra, því að undirbúningur þess hófst snemma, en vitanlega var ekki hægt að bera það fram fyrr en að loknum þeim undirbúningi. Það þarf því engan að undra það, þótt okkar frv. sé fyrr tekið til umr., og eru engin rangindi í því fólgin. Það segir sig sjálft, að fyrst þarf að gera út um afdrif Íslandsbanka, áður en Útvegsbankafrv. er tekið til umr.