25.03.1930
Neðri deild: 62. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (160)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (JörB):

Hv. 2. þm. G.-K. veit vel, að hæstv. dómsmrh. á sæti í Ed., og að hann hefir þurft að gegna störfum þar í dag. Ég geri ekki ráð fyrir, að hann renni af hólmi fyrir hv. þm. né öðrum, og hann mun hafa gert ráðstafanir til þess, að skrifað verði það af umr., sem hann varðar, og svara því síðan, er hann kemur hér aftur.