04.03.1930
Efri deild: 40. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í C-deild Alþingistíðinda. (1764)
205. mál, almennur ellistyrkur
Flm. (Ingibjörg H. Bjarnason):
Mér kom ræða hæstv. fjmrh. ekki á óvart, því að hann talaði mjög svipað þessu í fyrra. En ég vil geta þess, að þar sem ekki náðist samkomulag hér í deildinni í fyrra um framlög sveitar- og sýslusjóða, þá álitum við vænlegast að leggja frv. fyrir nú eins og það lá fyrir Sþ. í fyrra. Hitt væri sannarlegt „kák“, að fara að bera frv. fram í þeirri mynd, sem vitanlegt er, að Nd. vill ekki sætta sig við.
Hæstv. fjmrh. sagði, að frv. væri kák. Ég hefi margsagt, að ég skoða þetta frv. aðeins sem bráðabirgðaráðstöfun, þangað til tryggingarmálin eru komin í það horf, sem þau eiga að komast. Ég er því ekki sammála hæstv. fjmrh., að frv. þetta eigi engan rétt á sér, heldur sé kák eitt. Vegna þess hvílíka undirbyggingu — undirbúning — tryggingarmálin þurfa, eins og hæstv. fjmrh. tók fram, tel ég frv. nauðsynlega endurbót á ellistyrktarsjóðslögunum, þar til annað fullkomnara skipulag kemst á þau mál. Að ætla sér að leiða menn af með fyrirheitum um tryggingarlöggjöf einhverntíma í fjarlægri framtíð, má líkja við að stinga dúsu upp í barn. Menn, sem vilja láta þetta mál liggja í þagnargildi þar til hin fyrirheitna tryggingarlöggjöf kemst á, skilja ekki, hve brýn sú þörf er, sem hér er um að ræða.
Að endingu vil ég segja það, að ef á að setja þessa aðilja inn í frv., sveitarsjóði og sýslusjóði, þá verður það til að fella frv. í Nd., en það áliti ég illa farið. Frv. þetta, ef það verður að lögum, bætir allmikið úr því ástandi, sem er.