09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (1833)

11. mál, yfirsetukvennalög

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil gera nokkra grein fyrir atkv. mínu. Ég hefi áður fylgt þeim, sem lengst hafa viljað ganga í þessu máli. En vegna þess, hve stutt er eftir þings, og útlit er fyrir, að frv. nái ekki fram að ganga, ef brtt. hv. þm. Dal. verða samþ., en hinsvegar allmikil réttarbót fólgin í frv. frá því, sem nú er, mun ég greiða atkv. með því, en á móti brtt.