25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1879)

13. mál, Skeiðaáveitan o.fl.

Ingólfur Bjarnarson:

Ég er ekki við því búinn að svara fyrir n. hönd, en mér hefði fundizt, að mál þetta heyrði frekar undir fjhn. Þótt þetta mál yrði borið undir fjvn., þá er nú svo ástatt hjá henni, að enginn tími verður til að afgreiða málið fyrr en seint á þingi, því að framan af verður hún hlaðin störfum.