10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1485 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég hefi játað, að það eru afföll af þessu, en hinsvegar eru þau ekki svo mikil, að þau vegi upp móti verðmuninum. Annars skal ég geta þess, að þessar tölur gengisnefndar eru meðalverð, en ekki verð á einstökum dýrum, eins og mér virtist hv. þm. Borgf. gruna. Það er ekki hæsta verð eða lægsta, heldur meðalverð. (PO: Já, á úrvalsdýrum). Nei, af öllum dýrum upp og ofan.