10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1486 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Lárus Helgason:

Ég ætla, að öllum sé það vitanlegt, að landbn. hefir lagt mikla vinnu í þetta mál. Það er því ekki hægt að búast við því, að hv. dm. utan n. bæti þetta frv., þótt þeir flytji svo eða svo margar brtt. við það. Ég get því ekki betur séð en sjálfsagt sé að samþ. allar brtt. n. Hv. þdm. hafa ekki rannsakað þetta mál eins gaumgæfilega og n.