10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Forseti (BSv):
Brtt. hv. n. og brtt. hv. þm. Borgf. valda út af fyrir sig engum erfiðleikum við atkvgr. Í brtt. hv. 1. þm. N.-M. eru mörg atriði, sem sumir munu telja til bóta, en þar sem þær ákveða alveg, hvernig skuli orðaðar þær frvgr., sem þær eru við, komast hinar brtt. ekki að, ef þær eru samþ. Eins komast ekki brtt. hv. 1. þm. N.-M. að, ef hinar eru samþ. Mér finnst því, að ráðlegt væri fyrir hv. 1. þm. N.-M. að taka sínar brtt. aftur til 3. umr., og reyna þá að koma þeim að sem leiðréttingum á frv. eins og það verður þá. (HStef: Mér er þá sama, hver óskapnaður frv. verður, ef þm. vilja hafna því, sem til bóta er). Jæja, hv. þm. ræður þessu auðvitað sjálfur, og verður nú gengið til atkv.