16.04.1930
Efri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1578 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)

2. mál, fjáraukalög 1928

Ingvar Pálmason:

Þar sem frsm. n. er ekki við, þá get ég fyrir n. hönd getið þess, að enda þótt n. kunni að vera eitthvað ósammála um einstaka liði, þá leggur hún þó til, að frv. sé látið ganga óbreytt fram.