14.02.1930
Neðri deild: 25. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (2173)

116. mál, ábyrgð rekstrarláns til útgerðar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil ekki blanda mér í þessar umr., sem eru óþarfar í sambandi við þetta frv., en út af fyrirspurn hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að það atriði, sem hann talaði um, verður að athugast í sambandi við þá löggjöf, sem þá kemur til greina.

Ég stóð einnig upp út af því, að hv. þm. N.-Ísf. beindi til mín fyrirspurn um lánveitingarsynjun. Mér er alveg ókunnugt um þetta, og get því engar upplýsingar gefið.