27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

41. mál, sala jarðarhluta Neskirkju og ríkissjóðs

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Ég þarf ekki mikið um þetta frv. að segja. N. varð öll sammála um það, og í nál. er tekið fram allt, sem henni fannst ástæða til að segja því viðvíkjandi. Leggur hún til, að frv. verði samþ. óbreytt, með tilvísun til nál.