09.04.1930
Efri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
1. mál, fjárlög 1931
Jón Þorláksson: Áður en 15. gr. er borin upp til atkv., ætla ég að víkja að úrslitunum um atkvgr. um 20. brtt. fjvn., sem talin var samþ. með 7:6 atkv.
Í gær féll úrskurður forseta Sþ., sem var á þá leið um samskonar atriði og þessi till., að hún var talin fallin vegna ónógs atkvæðamagns undir sömu kringumstæðum. Ég álít þennan úrskurð forseta Sþ. réttan.
Það eru nú 14 menn hér í þessari hv. d., sem ég verð að telja atkvæðisbæra, þótt undanfærsla 1 þm. hafi verið gild tekin. Það er líka dálítið leiðinlegt, að hæstv. forsetar úrskurði sitt á hvað í þessum tilfellum.