10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1782 í B-deild Alþingistíðinda. (2422)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Sigurður Eggerz:

Það er rétt, að hv. þm. V.-Húnv. minntist á þetta við mig, en ég svaraði honum því, að svo framarlega sem beðið hefði verið um slíka skýrslu, þá mundi hún sjálfsagt koma. En þessi beiðni hefir alls ekki komið til bankastjórnarinnar. Og von var, að ég brygðist ókunnuglega við, þar sem ég vissi ekkert um slíka beiðni, enda liggur hún ekki fyrir í bankanum.