14.02.1930
Efri deild: 22. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1835 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Jón Þorláksson:
Bankaráð Íslandsbanka hefir á fundi 10. febr. samþ. svo hljóðandi ályktun:
„Bankaráðið beinir þeirri ósk til Alþingis, að það afgreiði ekki endanlega frv. til laga um skiptameðferð á bankanum, meðan þessi rannsókn stendur yfir“.
Ég álít ekki rétt, að málið fái endanlega afgreiðslu hér, fyrr en rannsókn á bankanum er lokið, og get því eigi greitt atkv. með því, að afbrigði verði leyfð um málið.