15.02.1930
Efri deild: 26. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (2469)
68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Fjmrh. (Einar Árnason):
Þetta mál er svo kunnugt öllum hv. þdm., að ég geri ekki ráð fyrir, að ég þurfi að skýra það nánar, sérstaklega eins og nú er ástatt með bankann, að verið er að semja lög um framtíð hans, og engar aðrar till. hafa gengið í gegnum Nd. Þess vegna verða menn að taka þetta frv. eins og það liggur fyrir og halda sér við það eitt.
Ég hefi áður haldið því fram, að nauðsyn beri til, að ráðstafanir verði gerðar sem fyrst út af bankanum, enda hefir stj. þegar byrjað á því samkv. fyrirmælum þeim, er í þessu frv. felast.
Ég sé ekki ástæðu til að stinga upp á n. í málinu, en mun hinsvegar taka það til athugunar, ef till. kunna að koma fram. Að endingu vil ég óska, að frv. verði vísað til 2. umr.