19.03.1930
Neðri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2028 í B-deild Alþingistíðinda. (2596)

50. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Magnús Torfason):

Ég skal aðeins geta þess, að n. hefir athugað skjöl þau, er fyrir liggja og fylgja umsóknum þeirra manna, sem um ríkisborgararétt hafa sótt og um getur á þskj. 187. N. vill eindregið mæla með því, að brtt. þskj. 187 verði samþ. og þessum þremur mönnum veittur íslenzkur ríkisborgararéttur.