28.03.1930
Neðri deild: 65. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2041 í B-deild Alþingistíðinda. (2667)

195. mál, fiskveiðasamþykktir og lendingarsjóðir

Pétur Ottesen:

Þetta frv. kemur frá hv. Ed. Þær breyt., sem þar voru gerðar á því, eru í raun og veru aðeins leiðréttingar, sem eru í samræmi við þær breyt., sem áður höfðu verið gerðar á frv. hér í deildinni.