15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2177 í B-deild Alþingistíðinda. (2902)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Jón Þorláksson:

Ég vil leyfa mér að spyrjast fyrir um þá ástæðu, sem er fyrir því, að þessara afbrigða er leitað. Og um leið vil ég spyrjast fyrir um það, hvað líður frestun þingstarfanna, og hvort það er fyrir þá sök, að leitað er afbrigða fyrir þessi mál. Ef fullnægjandi ástæður eru færðar fyrir því að veita afbrigðin, þá mun ég að sjálfsögðu greiða atkv. með því.