15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (2908)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Halldór Steinsson:

Ég er nú ekki svo fjarri því að veita afbrigði fyrir flest þessi mál, ef hæstv. stj. er það kappsmál. En ég vil geta þess áður en atkvgr. fer fram, að það eru ýms fleiri merk mál, sem liggja fyrir þessari hv. deild, og hafa enn ekki verið tekin á dagskrá. Vil ég þar sérstaklega nefna hafnarfrv. þrjú, sem nú eru komin úr n., og liggur nál. eins nefndarhl. fyrir d. í dag. Ég vil því leyfa mér að skjóta því til hæstv. forseta, að hann taki þessi mál á dagskrá á næsta fundi og leiti afbrigða um þau, líkt og um þessi mál, sem nú er leitað afbrigða fyrir.