15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (2909)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Jón Baldvinsson:

Ég vil spyrja líkt og hv. þm. Snæf.: Er hæstv. stj. fús til þess að veita afbrigði til þess að hafnarfrv. komist á dagskrá á morgun? Ef svarið verður játandi, kemur frekar til mála að sýna lipurð um veitingu afbrigða á þessum fundi.