18.02.1930
Neðri deild: 30. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2266 í B-deild Alþingistíðinda. (3018)

46. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. minni hl. (Hannes Jónsson):

Ég sé, að það á að keyra málið áfram gegnum hv. deild. Það er víst þýðingarlaust að gera nokkrar breyt. á því eins og það liggur fyrir í dag. En ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann tæki málið af dagskrá, svo að hægt sé að gera brtt. við það fyrir morgundaginn.