13.03.1930
Efri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2294 í B-deild Alþingistíðinda. (3053)
117. mál, jarðræktarlög
Forseti (GÓ):
Ég vil taka það fram út af ummælum hv. þm. Snæf., að samkv. þingsköpum skal leita álits fjvn. um svona mál. En þetta er bara alveg komið úr móð. Það hafa sannarlega stærri fjárhagsatriði en þetta komið fyrir þingið, eins og hv. þdm. hafa bent á, og ekki verið minnzt á að bera þau undir fjvn. Þannig hefir þingið hegðað sér allmörg undanfarin ár, og býst ég varla við, að þetta litla mál gefi tilefni til að breyta út af þessari venju, sem skapazt hefir, fyrst svona hefir farið um stærri málin.