29.03.1930
Neðri deild: 66. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2315 í B-deild Alþingistíðinda. (3101)

54. mál, lögskráning sjómanna

Frsm.(Sigurjón Á. Ólafsson):

Sjútvn. hefir ekki unnizt tími til að fara yfir brtt., sem fyrir liggja, en þess hefir verið óskað af þeim, sem bera brtt. fram, að n. fjalli það rækilega um þær, að þær geti gengið sem hjóðaminnst gegnum deildina. Ég vil því leyfa mér að beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá. Vænti ég þess, að málið geti samt sem áður gengið sína leið.