05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2377 í B-deild Alþingistíðinda. (3174)

32. mál, vegalög

Forseti (JörB):

Hv. þm. Barð. hefði getað sparað sér ákúrur til forseta út af því, sem þingið hefir gert í þessu máli. Forseti ræður ekki atkvgr. Ég benti hv. þm. aðeins á, að hann gæti breytt brtt. sinni, svo að hún gæti komizt að, og skil ég ekki, hvers vegna hv. þm. þurfti að taka það illa upp.