15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2379 í B-deild Alþingistíðinda. (3183)
32. mál, vegalög
Halldór Steinsson:
Ég er ekki allskostar ánægður með þetta frv. eins og það nú liggur fyrir, mest fyrir það, að mér finnst sem upptök málsins og meðferð í hv. Nd. séu ekki á þann veg, sem ég hefði helzt óskað og talið eðlilegast. Ég hefði óskað, að þegar miklar breyt. ætti að gera á vegalögunum, þá ættu breytingarnar að vera teknar upp af trúnaðarmanni stj. um þessi mál, nefnilega vegamálastjóra, en þetta frv. er svo til komið, að einstakir þm. hafa borið fram brtt. sínar og svo hafa aðrir komið á eftir með svipaðar óskir, og allt hefir síðan lent í hrossakaupum. Með þessu móti hljóta vegalögin að komast á ringulreið og öll þau „princip“ að verða brotin, sem þau eru byggð á, og á næsta þingi munu koma fram brtt., sem eru jafnréttháar og þessar, sem hér eru bornar fram, og þá verður ekki hægt að spyrna á móti þeim, þar sem fordæmið er gefið. Þetta er það, sem ég hefi aðallega við frv. þetta að athuga, að þarna er ekkert farið eftir vilja vegamálastjóra, enda hefir hann beinlínis lagt á móti sumum þeim brtt., sem hér eru bornar fram. Vilja sínum fékk hann ekki framgengt, því að hrossakaupin voru svo mikil í hv. Nd., að það var eins og þm. kepptust við að koma með sem lengstan vegarspotta til að hampa framan í kjósendur sína, þegar heim kæmi, og nota það sem agn við næstu kosningar.
Þrátt fyrir þetta hefi ég samt leyft mér að koma hér fram með brtt. á þskj. 458. Það er nýr liður, Snæfellsnesbraut, frá vegamótum austan Straumfjarðarár, um Staðarsveit og Breiðavík að Hellissandi. Í þessu sambandi skal ég geta þess, að ég hefi átt tal um þessa brtt. mína við vegamálastjóra, og vildi hann aðeins ganga inn á að taka veginn frá Straumfjarðará að Búðum upp í þjóðvegatölu, eða um helming vegarins, og láta þar við sitja. Ég skal strax taka það fram, að ég hefði viljað haga mér eftir till. vegamálastjóra, en sé ekki ástæðu til þess, þar sem vilji hans hefir verið svo lítils metinn af öðrum.
Ég skal taka það fram, að þessi vegur liggur um Staðarsveit og Breiðavík, en þar eru samgöngur vondar og illt að sækja á sjó. Þegar vestar dregur er mun strjálbýlla, en á Stapa er þó nokkurt þorp, og sama er að segja um Búðir.
Ég vona, að hv. þdm. líti með sanngirni á þessa till., því að hún á vissulega eins mikinn rétt á sér og aðrar brtt., sem fram hafa verið bornar.