07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (3239)
213. mál, skurðgröfur
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Þessi brtt., sem ég flyt hér á þskj. 422, er í beinu framhaldi af því, sem ég gat um við 2. umr. málsins, að rýmka þá heimild, sem veitt er í þessum lögum. Hér hefir verið um að ræða þær stóru skurðgröfur, sem á að nota til framræslu stórra svæða, eins og t. d. þá, sem notuð er í Skagafirði. Það, sem ætlazt er til með brtt., er, að einnig megi kosta nokkru til með að gera tilraunir um smíði á lítilli skurðgröfu, sem hægt væri að nota heima fyrir hjá mönnum; á því sviði er um stórkostlega mikla vöntun að ræða og mundi þar bætt úr mikilli þörf, ef hægt væri að leysa vel þetta mál. Af þeim ástæðum er þess óskað, að stj. fái heimild til að gera slíkar tilraunir.