08.03.1930
Efri deild: 46. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2429 í B-deild Alþingistíðinda. (3263)

78. mál, áfengislög

Forseti (GÓ):

Ég get orðið við tilmælum hv. 2. þm. S.-M. um að taka málið út af dagskrá að þessu sinni, og það því frekar, sem öllu er til skila haldið að við getum haft reglulega fundi sökum skorts á verkefni. Er málið hér með tekið út af dagskrá.