04.04.1930
Neðri deild: 71. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2430 í B-deild Alþingistíðinda. (3270)

78. mál, áfengislög

Pétur Ottesen:

Ég vil einungis gera það að till. minni, að þessu máli verði vísað til hv. allshn., og jafnframt vil ég beina þeim tilmælum til hv. n., að hún taki málið til skjótrar afgreiðslu, því að brýn nauðsyn ber til þess, að þetta frv. nái lögfestingu sem allra bráðast.