10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í D-deild Alþingistíðinda. (3340)

363. mál, lækkun vaxta

Magnús Jónsson:

* Ég vil aðeins leiðrétta það hjá hæstv. ráðh., að bankaráð eða bankastjórn séu einráð um vextina. Þessar nefndir, bankaráð og bankastjórn, verða að meta peningamarkaðinn, en ráða ekkert að öðru leyti, en þar álít ég einmitt, að stj. geti haft nokkur áhrif á þann peningamarkað, sem bankaráðið á að meta. Þess vegna mun ég ekki leggjast á móti þessari till., en af því að ég hefi enga trú á henni, mun ég ekki greiða atkv. á móti, en sitja hjá.