05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (3394)

154. mál, milliþinganefnd

Forseti (JörB):

Ég tek ekki við neinum ákúrum frá hv. þm. Ísaf. um hlutdrægni í þessu máli. Það hefir verið tekið hvað eftir annað á dagskrá, en að það er fært til nú, stafar af því, að þm., sem flytur eitt málið, fer í burtu úr bænum í dag, og ég hafði lofað honum að taka mál hans fyrir, áður en hann færi.