05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (3395)

154. mál, milliþinganefnd

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil minna hæstv. forseta á, að þetta er í annað skipti á 2 dögum, sem hann frestar þessu máli. Ég er flm. þess, og hann hefði a. m. k. átt að ráðfæra sig við mig, áður en hann lofaði öðrum þm. að taka hans mál fyrst. Ég endurtek það, að framkoma hæstv. forseta er ósæmileg.