15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (3519)

388. mál, varnir gegn berklaveiki

Forseti (BSv):

Þó að fjárl. verði 2. mál á dagskrá og þáltill. um berklavarnir 3. mál, er ekki loku fyrir það skotið, að umr. um hana megi fara fram á undan fjárl., svo framarlega, sem hv. flm. getur náð um það samkomulagi við hæstv. stj., en til þess treysti ég öllum aðiljum.