17.04.1930
Neðri deild: 85. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í D-deild Alþingistíðinda. (3575)

440. mál, styrkur samkvæmt jarðræktarlögunum

1) Með svofelldri grg.:

Þetta er í fyrsta skipti, sem ég geri grein fyrir atkvæði mínu. Ég myndi hafa kvatt mér hljóðs til að ræða þetta, ef ekki hefði staðið svo á, að ég varð að fara frá áðan. En ég hélt sérstakan fund um þetta og hygg, að ég hafi hvern einasta kjósanda með mér í mínu kjördæmi, og segi þess vegna já.