17.04.1930
Neðri deild: 85. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í D-deild Alþingistíðinda. (3581)

455. mál, miðunarvitar

Jóhann Jósefsson:

Ég vildi mælast til þess, að hæstv. forseti taki til umr. till. um miðunarvita. Hún er flutt af sjútvn. allri í þessari hv. deild. Býst ég því við, að ekki verði mikill ágreiningur um hana, og það er hvort sem er orðið mjög áliðið.