12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (JörB):

Ég skal geta þess, að þrír þeirra hv. þm., sem fjarverandi eru, hafa leyfi, þeir hv. þm., N.-Þ., hv. þm. Vestm. og hv. 1. þm. Reykv.

Umr. verður frestað sakir þeirra manna, sem eru forfallaðir, en hafa till. að mæla fyrir; ella myndi umr. slitið.