13.02.1930
Efri deild: 21. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (620)

92. mál, útflutningsgjald af síld

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Af því að hæstv. fjmrh. er ekki hér viðstaddur, vildi ég beina því til hv. flm., að það er mjög erfitt að draga úr tekjulindum ríkissjóðs án þess að nokkuð komi í staðinn. Vildi ég því mælast til þess, að hann kæmi fram með till. um tekjuaukningu handa ríkissjóði og málið yrði síðan athugað í fjhn.