22.01.1930
Efri deild: 2. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

Kosning fastanefnda

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég vildi aðeins lítillega mótmæla skoðun hv. 3. landsk. út frá því sjónarmiði, að þessi deild er svo fámenn, að oft og tíðum hlaðast of mörg nefndarstörf á sömu mennina, ef fimm menn eru í mörgum nefndum, þar sem það er engin skylda.