22.01.1930
Efri deild: 2. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (636)

Kosning fastanefnda

Forseti (GÓ):

Ég ber þetta mál undir deildina, hvort hún vill hafa þrjá eða fimm í n. Það er víst meiri venja að kjósa ekki nema þrjá, a. m. k. í byrjun þings. En nokkrum sinnum hefir verið bætt við tveimur mönnum, þegar fram á þing kemur, þegar sérstaklega er mikið að gera. Seinast var það þannig á þinginu í fyrra. (BK: Í þingbyrjun í fyrra voru kosnir fimm menn í fjhn.). Það mun þá hafa verið í hitteðfyrra. En nú læt ég ganga til atkv. um þetta í hv. deild.