14.04.1930
Neðri deild: 79. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (BSv):

Ég þekki engin fyrirmæli í þingsköpum, er segi fyrir um það, hversu flokkar skuli ávarpaðir, svo að eigi séu notuð óþingleg orð. En ég get minnt hv. þm. Dal. á, að til er gamall málsháttur, sem segir: Slík skulu gjöld gjöfum.