26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (702)

Þingvíti

Forseti (BSv):

Mér þykir leitt, hversu hv. þm. Borgf. veður reyk í hinum síðustu orðum sínum. Hæstv. forsrh. sagði mér frá því í fyrradag, að hann mundi bjóða hv. samgmn. í ferðalag í dag, og var því hægt að haga dagskrá eftir því í dag. Finnst mér hv. þm. því mega spara sleggjudóma sína.