11.04.1930
Efri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2463 í B-deild Alþingistíðinda. (740)

Fjölgun manna í fjhn. Ed.

Björn Kristjánsson:

Herra forseti! Þar sem nú liggja mjög umfangsmikil mál fyrir fjhn. þessarar deildar, mál, sem útheimta tekniska þekkingu, en sú þekking er ekki til í n., leyfi ég mér að stinga upp á því, að tveim mönnum sé bætt við í n., og þá helzt þeim sömu, sem fyrr á þinginu, þegar n. hafði bankamálið til meðferðar.