19.04.1930
Sameinað þing: 10. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2469 í B-deild Alþingistíðinda. (758)
Þingfrestun
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Mánudag síðasti. gaf sameinað Alþingi samþykki sitt til þess, að fundum Alþingis yrði frestað frá síðari hluta aprílmánaðar til 26. júní. Degi síðar barst mér símskeyti frá konungsritara þess efnis, að konungur hefði sama dag undirritað konungsbréf um frestun á fundum Alþingis, er svo hljóðar:
„Vér Christian hinn tíundi, af guðs náð konungur Íslands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í Slésvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þéttmerski, Láenborg og Aldinborg,
Gerum kunnugt: Að vér viljum hér með, að tilskildu samþykki Alþingis, veita yður sem forsætisráðherra vorum umboð til þess í voru nafni að fresta fundum hins yfirstandandi reglulega Alþingis, frá því er venjulegum störfum þess verður það langt komið, að ekki þyki ástæða til lengra þinghalds að sinni, þangað til í síðari hluta júnímánaðar næstkomandi.
Gert á Amalienborg, 15. apríl 1930.
Undir vor konunglega hönd og innsigli.
Christian R.“.
Samkvæmt þessu umboði konungs lýsi ég yfir því, að fundum Alþingis er frestað til 26. júní næstkomandi.