29.01.1930
Efri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (769)

17. mál, kosningar til Alþingis

Halldór Steinsson:

Ég get ekki verið á sama máli og hæstv. ráðh. hvað þessu atriði viðvikur. Ég fæ ekki skilið, að ekki sé hægt að geyma atkv. frá vorinu til haustsins, en mér virtist, sem hæstv. ráðh. teldi það ógerlegt. Að mínum dómi ætti það ekki að vera bundið neinum erfiðleikum.