22.02.1930
Efri deild: 32. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (795)
10. mál, laun embættismanna
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Fyrir hönd fjhn. hefi ég fátt að segja um frv. Það er sameiginlegt álit flestra, að meðan ekki er framkvæmd endurskoðun á launalögunum, verði ekki hjá því komizt að greiða embættismönnum dýrtíðaruppbót. Sú endurskoðun er ekki nærri, svo að þessi ráðstöfun nú virðist óhjákvæmileg.
Í upprunalega frv., sem stj. lagði fyrir þingið, var gert ráð fyrir, að þessi breyt. gilti til ársloka 1932. En í hv. Nd. hefir þessu verið breytt þannig, að hún gildi ekki nema til ársloka 1931. Þó að ég verði að telja, að það hafi verið ástæðulaust að stytta þann tíma, sem lögin eiga að gilda, þá tel ég ekki vert að breyta því aftur, og það mundi ekki verða til annars en að tefja málið. En allar líkur benda til þess, að næsta þing verði einnig að framlengja þessi lög, svo að réttast hefði verið að láta þau gilda til 1932. Því það er augljóst, að fyrr verður ekki lokið endurskoðun á launalögunum. Þrátt fyrir þetta hefir fjhn. orðið sammála um að mæla með að samþykkja frv. óbreytt.