19.03.1930
Neðri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (JörB):

Hv. þdm. hafa venjulega sýnt frjálslyndi í þessum efnum, og tel ég því víst, að þessi afbrigði fáist. Hv. 1. þm. Rang. getur þess vegna talað fyrir sínum till. nú, sem ég veit, að eru þess eðlis, að þeir, sem hlýða á mál hans, vita gerla um hvað þær hljóða.